Blak - U17

Heiðbrá Björgvinsdóttir er nemandi í 10. bekk.

Hún hefur æft blak í nokkur ár með Umf. Leikni hér á Fáskrúðsfirði, auk þess sem hún æfir og þjálfar krakka í fimleikum. 

Hún var valin í hóp stelpna í U 17 í blaki og fer á föstudaginn til æfinga og í keppnisferð til Danmerkur.

Heiðbrá er góð fyrirmynd og við óskum henni góðs gengis í blakinu.