Heimanámsstefna GF

Heimanámsstefna GF

Áhugi sem foreldrar sýna á námi barna sinna getur skipt sköpum varðandi námsárangur barnanna. Foreldri þarf ekki nauðsynlega að kunna námsefni vel til að aðstoða við heimanámið, það er hvatningin og áhuginn sem mestu máli skiptir. Í byrjun skólagöngu er mikilvægast að hlusta á barnið lesa, hvetja það við ritun, hjálpa því að fletta upp í orðabók, hlýða yfir margföldunartöfluna o.s.frv. Ef barnið lendir í vandræðum og enginn á heimilinu áttar sig á hvað á að gera er hægt að skrifa athugasemd til kennara eða senda honum tölvupóst svo að hann átti sig á stöðunni og geti brugðist við ef þörf krefur.  

Markmið með heimanámi nemenda í GF er að barnið læri að sýna sjálfsaga, læri að vinna sjálfstætt, þjálfun í mikilvægum námsþáttum og undirbúningur undir kennslustundir. Ekki er síðra að ýta undir jákvæð samskipti og skapa samræður um það sem börnin eru að gera á daginn en slíkur áhugi hefur mikil áhrif á námsárangur.  

Taka þarf mið af einstaklingsþörfum við skipulagningu heimanáms. Foreldrar geta óskað eftir auknu heimanámi og ef þeir eiga í vandræðum með að fá börn sín til að læra heima biðjum við þá að hafa samband við skólann og í sameiningu hjálpumst við að við að leysa málið farsællega.  

Heimanám á yngsta stigi 

Megináherslan er á heimalestur. Nemendur eiga að lesa heima, fimm sinnum í viku, og foreldrar þurfa að fylgjast með og skrá niður það sem lesið var og kvitta fyrir í lestrahest sem nemendur hafa með lestrarbókum. Góð færni í læsi er undirstaða alls annars náms og því afar mikilvægt að þeirri þjálfun sé vel sinnt frá upphafi. Með lestri og samræðum er einnig byggt undir hugtakaskilning og orðaforða sem styður við alla tjáningu og samskipti.

Nemendur í grunnskóla eru í fullri vinnu í skólanum. Allt heimanám fyrir utan heimalestur er aukavinna og má líta á sem sýnishorn á vinnu nemenda í skólanum. Ef foreldrar óska eftir auknu heimanámi bendum við á gagnvirkt námsefni á vef Menntamálastofnunar, mms.is. Heimanám birtist inni á Mentor vikulega og á föstudögum senda umsjónarkennarar póst með ýmsum upplýsingum. 

Heimanám á miðstigi 

Meginmarkmið með heimanámi á miðstigi er að ljúka vinnu sem ekki tókst að ljúka í skólanum og stundum einnig undirbúningur undir kennslustundir. Jafnframt er það æfing í sjálfstæðum vinnubrögðum og leið fyrir foreldra til að fylgjast með námi barna sinna. Lestur er áfram hluti af daglegu heimanámi eins og á yngsta stigi. Nemendur í grunnskóla eru í fullri vinnu í skólanum. Það er því mikilvægt að íþyngja þeim ekki um of með aukavinnu í heimanámi. Ef foreldrar óska eftir auknu heimanámi bendum við á gagnvirkt námsefni á vef Menntamálastofnunar, mms.is. Heimanám birtist inni á Mentor vikulega og á föstudögum senda umsjónarkennarar póst með ýmsum upplýsingum. 

Heimanám á unglingastigi 

Markmið með heimanámi á unglingastigi er að nemendur vinni frekar með þá námsþætti sem verið er að vinna með í skólanum og fái þannig aukið tækifæri til að byggja upp og dýpka þekkingu sína og hæfni. Einnig er mikilvægt að nemendur ljúki þeim verkefnum, þegar heim er komið, sem þeim tókst ekki að klára í skólanum. Mikilvægt er að kennarar taki tillit til ólíkra þarfa nemenda og íþyngja nemendum ekki um of með heimavinnu.