Reglur um reiðhjólanotkun
Hjólum skal leggja í hjólagrindur. Hjólin má ekki nota á skólalóð en leyfilegt er fyrir nemendur í 5. – 10. bekk að fara á hjólum í íþróttir og sund. Nemendur bera sjálfir ábyrgð á hjólum sínum og búnaði. Nauðsynlegt er að nemendur noti hjálma og eru foreldrar beðnir um að ganga eftir því við börnin að það sé gert. Eins er mikilvægt að huga að veðri, aðgæta færð og birtuskilyrði.
1.- 4. bekkur
Samkvæmt umferðarlögum (44. gr.) mega börn yngri en 9 ára ekki hjóla ein á akbraut nema undir leiðsögn og eftirliti manns sem hefur náð 15 ára aldri. Nemendur undir 9 ára aldri mega því ekki koma eina á hjóli í skólann eða nýta það til að fara í íþróttir og sund.
5. – 10. bekkur
Nemendum í þessum bekkjum er heimilt að koma á hjólum/rafhjólum í skólann. Foreldrar eru beðnir um að huga að reglum um reiðhjólanotkun ungmenna.
Hafa ber í huga að flest börn yngri en 10 ára:
- Hafa ekki náð fullkomnu valdi á grófhreyfingum og samhæfingu vantar í hreyfingar.
- Hafa ekki fullþroskað jafnvægisskyn og hliðarsýn.
- Skynja ekki hraða og fjarlægð ökutækja sem nálgast eða úr hvaða átt hljóð kemur.
- Eiga oft erfitt með að einbeita sér að fleiru en einu atriði í einu.
- Eiga það til að taka ákvarðanir í skyndi án þess að hugsa um afleiðingarnar.
- Yngri börn en 10 ára hafa því ekki nægilegan þroska til að vera fullkomlega ábyrgir vegfarendur.
Rafmagnshlaupahjól
Samkvæmt reglum eiga börn að hafa náð 13 ára aldri til að mega nota rafmagnshlaupahjól. Rafmagnshlaupahjól eru því bönnuð á skólatíma fyrir börn sem ekki hafa náð þeim aldri.