Rubik´s töfrateningur

Kaleb með töfrateninginn
Kaleb með töfrateninginn

Kaleb Týr er nemandi í 7. bekk. Hann hefur verið að bæta hraðamet sitt í að raða töfrateningnum rétt en það er gert með því að snúa honum þar til einn litur hylur hverja hlið.

Hann er kominn niður í 50 sek. Hann ætlar fljótlega að hafa kennslustund fyrir nemendur  7. - 8. bekk og gefa  þeim nokkur ráð.

Spennandi verður að fylgjast með honum í framtíðinni.

 

28.09.18 uppfærsla: Hann er búinn að bæta metið, kominn niður í 42,29 sek.