Mánudaginn 17.mars var haldin skólahátíð þar sem nemendur 7. bekkjar æfðu sig í upplestri fyrir foreldra og aðstandendur. Nemendur stóðu sig með eindæmum vel og mega þeir vera stoltir af frammistöðu sinni. Það hefur verið einstaklega gaman að fylgjast með miklum framförum nemenda í framsögn og framkomu og óhætt er að segja að margir sætir sigrar hafi unnist með þátttökunni því hugrekki og öryggi nemenda við að koma fram hefur einnig aukist til muna. Þó svo að aðeins tveir hafi verið valdir til áframhaldandi þátttöku má segja að sigurvegararnir hafi verið mun fleiri.
Myndir frá hátíðinni má finna hér.
Til hamingju nemendur í 7. bekk með glæsilega frammistöðu.
Við óskum Svavari Óla, Hafþóri Gesti ásamt varamanni þeirra Auðbjörgu Olgu innilega til hamingju og óskum þeim jafnframt góðs gengis í aðalkeppninni í 26.mars nk.